Höfðagata er elsta starfandi gistiheimilið í Stykkishólmi. Það er vel staðsett í bænum með fallegu útsýni og stutt er í alla þjónstu.
Garðurinn umhvefis húsið er gróinn og á góðum dögum er kjörið að sitja úti og jafnvel borða morgunmatinn þar.
Frá og með 1. október 2017 verður ekki boðið upp á morgunverð en gestum okkar er velkomið að nota aðstöðuna til að útbúa sinn eigin morgunverð.
Stykkishólmur er einn fallegasti kaupstaður á Íslandi og þó víða væri leitað. Fjölbreytt úrval af veitingastöðum er í bænum auk skemmtilegra safna m.a. Vatnasafnið, Eldfjallasafnið og Norska húsið. Þá státar bærinn af mörgum gömlum og fallegum húsum í elsta hluta bæjarins og er hægt að fá fræðandi og skemmtilega leiðsögn um sögu húsanna. Vatnið í Stykkishólmi er vottað og þykir mjög heilsusamlegt. Það eru því margar ástæður fyrir því að koma í Hólminn og þarf engum að leiðast þar.
Þá má ekki gleyma þeim möguleika að fara í siglingar um eyjarnar. Flatey sem jafnan er kölluð perla Breiðafjarðar er eyja sem allir ættu að heimsækja. Þar hefur tíminn staðið í stað - að koma þangað er eins og að ferðast 100 ár aftur í tímann.
Fyrir þá sem hafa gaman af golfi þá er góður golfvöllur í Hólminum.
Queen size rúm með góðum dýnum.
Tvö stök rúm með góðum dýnum.
Tvö rúm með góðum dýnum.
Queen size rúm með góðum dýnum. Sér baðherbergi.
Queen size rúm með góðri dýnu, einbreitt rúm.
Fullbúin íbúð með tvöföldu rúmi, eldhúsi og sér baðherbergi. Svefnsófi fyrir tvo í stofunni.